Iceland
This article was added by the user . TheWorldNews is not responsible for the content of the platform.

Íbúðaverð heldur áfram að hækka

Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,7% milli apríl og maí. Vísitalan hefur nú hækkað fjóra mánuði í röð, að því er fram kemur í Hagsjá Landsbankans.

Þar áður, í nóvember, desember og janúar, varð lengsta samfellda lækkun íbúðaverðs frá því í lok árs 2009. Lækkunin hefur nú gengið til baka og gott betur, að því er segir í tilkynningu Landsbankans.

„Óhætt er að segja að íbúðamarkaður hafi ekki kólnað eins hratt og ætla hefði mátt. Hærra vaxtastig og þrengri lánþegaskilyrði hafa dregið mjög úr aðgengi að lánsfé og þannig slegið á eftirspurn.

Á móti vegur síaukin þörf á íbúðum. Landsmönnum hefur aldrei fjölgað jafnmikið og á síðasta ári og á fyrsta fjórðungi þessa árs.“

Alls 392 kaupsamningar í maí

Hækkandi leiguverð sýni einnig að þótt eftirspurn eftir íbúðum til kaupa hafi minnkað með breyttu lánaumhverfi er enn eftirspurn eftir húsnæði.

Alls voru 392 kaupsamningar undirritaðir á höfuðborgarsvæðinu í maí, 40% færri en í sama mánuði í fyrra, samkvæmt bráðabirgðatölum HMS. Þeim fjölgaði þó á milli mánaða, en þeir voru 325 í apríl.

mbl.is