Hvaða snillingur fann þetta upp?

Dóttir mín er fíkill. Eftir nokkur ár á götunni fékk hún úthlutað íbúð hjá Félagsbústöðum. Hún fékk skráningu sem öryrki og af því leiðir að TR greiðir henni mánaðarlega eitthvað yfir 300 þúsund á mánuði inn á bankareikning til frjálsrar ráðstöfunar.

Þessir peningar duga vel til að greiða lága húsaleigu, sem hún gerir auðvitað ekki. Hún er fíkill. Það sem eftir verður dugar ljómandi vel til að greiða reikninga fyrir rafmagn og hita, sem hún gerir auðvitað ekki. Hún er fíkill. Fyrir þessa peninga er líka gert ráð fyrir að hún kaupi sér eitthvað að éta, sem hún gerir sjaldnast. Hún er fíkill.

Fimmtudaginn 28. september var hún útskrifuð af Landspítalanum með lögregluvaldi. Hún fékk með sér göngugrind, sem átti víst að gegna því hlutverki að styðja hana upp stigann að leiguíbúðinni hjá Félagsbústöðum, sem er á fjórðu hæð í lyftulausu húsi. Þegar ég nefndi þetta við doktorinn, sneri hann sér að fíklinum í sjúkrarúminu og sagði: „Heldurðu að þú getir ekki hökt upp stigann.“ Ég heyrði ekkert spurningarmerki í röddinni.

Undanfarinn mánuð hef ég reynt að fá þessa dóttur mína flutta í íbúð, þar sem hún gæti mögulega komist inn með aðstöð göngugrindar. Ég var ekki virtur viðlits, fyrr en sama dag og lögreglan færði hana út af Landspítalunum í hjólastól, sem öryggisvörður gerði síðan upptækan. Þennan sama dag gekk ég inn í starfsstöð Velverferðarráðs Reykjavíkur, settist niður og tilkynnti að út færi ég ekki án skýringa.

Ég var búinn að tala við vegg í vel á annan mánuð. Þegar mér var nú loksins nóg boðið og fór í þetta setuverkfall, kom í ljós að auðvitað er biðlisti eftir íbúðaskiptum. Og þótt formleg umsókn liggi fyrir, kemst dóttir mín ekki einu sinni á þann biðlista fyrr en hún er búin að gera upp milljónaskuld sína við Félagsbústaði. Með hvaða peningum?

Ef við reynum að draga þetta saman og máta við veruleikann, sýnist mér að aðferðafræðin sem við beitum til að þjónusta fárveika fíkla sé nokkurn veginn þessi:

Við sjáum þeim ekki fyrir húsnæði, rafmagni né upphitun.

Við gefum þeim ekki að éta.

Og við sjáum þeim að sjálfsögðu ekki fyrir fíkniefnum.

En við afhendum þeim fúslega peninga til að fíkniefnakaupa á svörtum markaði. Nú mega allir verða eins hissa og þeir vilja á þeirri sérvisku fíkla að kaupa sér dóp fyrir húsaleigu- og matarpeningana.

Útborgunin frá TR dugar fíklunum að vísu ekki nema í nokkra daga. Eftir það þurfa þeir að sjá fyrir brýnustu lífsnauðsynjum sínum – sem að sjálfsögðu eru fíkniefnin - með ýmiskonar minniháttar verktakastarfsemi svo sem þjófnaði, innbrotum eða vændi. En það er allt í besta lagi, því við höfum líka byggt upp þetta fína fangelsiskerfi. Að vísu lenda fíklarnir líka á biðlista þar.

Maður tekur auðvitað ofan fyrir þeim snillingi sem fann upp þetta kerfi. Hver var það eiginlega? Veit það einhver?

Höfundur er aldraður faðir miðaldra fíkils.


Football news:

<!DOCTYPE html>
Kane on Tuchel: A wonderful man, full of ideas. Thomas in person says what he thinks
Zarema about Kuziaev's 350,000 euros a year in Le Havre: Translate it into rubles - it's not that little. It is commendable that he left
Aleksandr Mostovoy on Wendel: Two months of walking around in the middle of nowhere and then coming back and dragging the team - that's top level
Sheffield United have bought Euro U21 champion Archer from Aston Villa for £18.5million
Alexander Medvedev on SKA: Without Gazprom, there would be no Zenit titles. There is a winning wave in the city. The next victory in the Gagarin Cup will be in the spring
Smolnikov ended his career at the age of 35. He became the Russian champion three times with Zenit

23:50 Ríkisstjórnarsamstarfið var undir
23:17 Svona komst lögreglan á snoðir um skútuna
23:04 Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Stjarnan 81-87 | Stjörnusigur eftir framlengdan leik í Ljónagryfjunni
23:01 Brighton án Welbeck og March í lengri tíma
23:01 Brighton án Welbeck og Solly March í lengri tíma
22:50 Gátu loksins komið sér saman um þing­for­seta
22:40 Xavi óánægður með ríginn við Real Madrid | Vill sjá vinsemd og virðingu í El Clasico
22:30 Hann var flugumaðurinn í morðingjahópnum
22:28 Vilja varanlega starfsstöð á Nýja-Sjálandi
22:25 Bomba í enskum blöðum í kvöld – United sagt reyna að fá De Gea til að koma aftur
22:25 Líkur á tíðari skjálftahrinum
22:22 Yndislegt að búið sé að opna Þorskafjarðarbrú
22:21 Segir ekkert eld­gos að byrja en hrinan haldi á­fram
22:07 „Enginn á að reikna með auð­veldum leik á móti okkur“
22:00 Leikmenn City fá á baukinn fyrir umdeildan klæðnað í kvöld – „Þetta er hræðilegt“
22:00 Launaþjófnaður afhjúpaður á Suðurlandi eftir hálft ár af stappi – Rótgróinn aðalverktaki spilaði lykilhlutverk
21:57 Aðgerðirnar hafi „óafturkræf áhrif“ á drengina
21:53 Segir Séra Frið­rik hafa leitað á dreng og káfað á honum
21:50 Slysagildra við Álfabakka
21:45 Guðlaugur vill menningarminjar í öndvegi
21:31 Forsetinn og ráðherra mættu í afmæli Reynis Péturs
21:30 Ólga í umræðuhópi í Vesturbæ eftir að umræðu var eytt út – Reyndum fréttamanni blöskrar
21:29 Haukar gengu örugglega frá Eyjakonum
21:00 Verjandinn sem vildi 14 m.kr fyrir 80 daga gekk tómhentur úr Hæstarétti – Sultuslök lögreglan sendi hvorki kröfu né lögmann
21:00 Rampur númer 900 vígður
20:56 Meistaradeildin: Dortmund vann í Newcastle – Haaland opnaði markareikning sinn þetta árið
20:31 Fugla­á­huga­maður sakaður um al­þjóð­legar njósnir og kallaður í skýrslu­töku
20:30 Sjáðu þegar stórstjarnan hrundi af sviðinu í gær – Ætli Shakira sé byrjuð að semja lag?
20:30 Sigurhrina Madgeburg heldur áfram | Sigvaldi hélt sig hægan gegn Aalborg
20:20 Edda handtekin en synirnir neituðu að fara
20:11 Flutningi þriggja ís­lenskra drengja til Noregs frestað
20:05 Nýjar out­let fata­verslanir opna í Holta­görðum
20:00 Heimsmeistarinn handtekinn
20:00 Óttast að Jesus verði lengi frá
19:55 100 manna röð í grenjandi rigningu
19:50 Vilja stöðva alla lundaveiði
19:45 Edda Björk Arnardóttir og maður hennar sögð hafa verið handtekin
19:42 Mun þurfa að svara fyrir öryggisbrestinn
19:31 Menningarminjar að sökkva í sæ
19:30 Nýtt Arons Jó mál í uppsiglingu? – Fyrrum leikmaður FH og Breiðabliks spilaði í Meistaradeildinni í dag en gæti valið Bandaríkin
19:16 Stuðningur við ríkisstjórnina svipaður og við Samfylkingu
19:00 Sjónvarpskonan vinsæla grillaði dónarkarl á samfélagsmiðlum – „Kemur þú með smásjá líka?“
18:52 Að­koma stjórn­valda nauð­syn­leg fyrir gerð lang­tíma­kjara­samninga
18:30 Skaðabótamál eftir örlagaatvik á Nýbýlavegi
18:30 Stóri bróðir sér rauð flögg við sambandið við Taylor Swift
18:30 Haaland verður af 170 milljónum sem margir telja að hann eigi skilið
18:17 Fulltrúadeildin fær loksins nýjan forseta
18:07 Mögu­lega meiri vindur en talið var þegar kastalinn fór á loft
18:06 Þolinmæði á þrotum og fundir skilað litlu sem engu
18:00 Þungur dómur gæti beðið Everton ef félagið verður sakfellt í vikunni
17:53 Vonar að hvatningin nái út fyrir landsteinana
17:52 Þörf á aðkomu stjórnvalda í næstu kjaraviðræðum
17:30 Sjáðu myndina – Braut Onana reglur og hefði átt að endurtaka vítaspyrnuna í gær?
17:30 Leikarinn lendir ítrekað í veseni á flugvöllum vegna nafns síns
17:30 Misþyrmdi þremur mönnum sama daginn
17:30 Segir Haaland að undirbúa sig fyrir það að fá marbletti í kvöld
17:20 Skuggar eftir Sölva Tryggvasonar
17:05 Ísraelar samþykkja að bíða með innrás
17:01 „Þetta var hans ein­læga ósk“
17:01 Hrútarnir spörkuðu sparkaranum eftir slæma helgi
17:00 Klopp færði stuðningsmönnum Liverpool góðar fréttir
16:58 Ný út­lán til fyrir­tækja skreppa saman í fyrsta sinn í nærri tvö ár
16:52 Á annan tug sagt upp hjá Rapyd
16:49 Lokaði erfiðum átján ára hring með heimsókn í Útvarpshúsið
16:49 Vara við mjólk frá Candida Just Milk
16:42 Öryrkjar tapa krónu á móti krónu máli í Hæstarétti
16:36 Settist upp í hjá öku­manni í vímu sem bakkaði á ógnar­hraða
16:30 Auðun lokaði hringnum með heimsókn á RÚV
16:28 Laxveiði 22 % undir meðalveði áranna frá 1974
16:24 Hugsanlega hraðari þróun en áður
16:19 Leiðrétta þarf laun kvennastétta
16:10 Beint: Framúrskarandi fyrirtæki Creditinfo verðlaunuð
16:05 Sandra María í­hugar næstu skref: „Skoða allt sem kemur upp á borðið“
16:00 Fyrrum leikmaður Arsenal að finna sér nýjan vinnuveitanda
16:00 Hafnarfjörður mátti neita að greiða fyrir máltíðir grunnskólabarns
16:00 Skiptar skoðanir um seðlabankarafeyri
15:39 „Ísland á rétt á að veiða þetta“
15:36 Sigríður Hagalín fékk táknræna gjöf frá móður sinni
15:33 Útlitsmeðferðir verði aðeins á færi lækna
15:32 Alvarleg ábending en átti ekki við rök að styðjast
15:31 Schmeichel ærðist af gleði þegar Onana varði vítið gegn FCK
15:31 Ís­lenskir sauð­fjár­bændur launa­lausir – Hvers vegna?
15:30 Klopp hrósar leikmanni sínum í hástert – „Aðlögunarferlinu er löngu lokið“
15:30 Mjaldrasysturnar gætu brátt fengið félagsskap í Vestmannaeyjum
15:29 Útskrifaðist úr háskóla, byrjaði í sínu fyrsta fulla starfi og grætur af vonbrigðum – Hvernig fer fólk að þessu?
15:29 „Í hvaða heimi býrð þú?“
15:23 Neytendastofa slær á putta Arnars – Skilmálar Sante.is ólögmætir
15:18 Kosningar um sameiningu Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar lýkur á laugardag
15:15 Ræddu saman eftir afsögnina
15:10 Björg­vin Ingi og Eva selja hönnunar­para­dís í Akra­hverfinu
15:10 Engar óyggjandi niðurstöður í hoppukastalamáli
15:00 Sjáðu ótrúlegt mark Ronaldo gegn Coutinho og félögum í gær
14:55 Stór­meistarar verði ekki lengur opin­berir starfs­menn
14:53 Afkoma Hafnarfjarðarbæjar betri en var vænst
14:50 Krufningu lokið í Bátavogsmálinu – Segir dauðan smáhund ekki tengjast málinu
14:33 Samþykktu hækkun vaxta í 13%
14:30 Rúnar spurður út í KR: „Ég ætla ekki að svara þessari spurningu… ég hef auðvitað mínar skoðanir“
14:23 Rafvæðing bílaflotans þjóðaröryggismál
14:00 Frestun vandamála fremur en lausn
13:22 Miklar launahækkanir yrðu áhyggjuefni