Ís­lenskir sauð­fjár­bændur launa­lausir – Hvers vegna?

Það hefur vonandi ekki farið fram hjá neinum að bændur hafa á undanförnum árum upplifað miklar þrengingar í afkomu sinni. Bændur þurfa á því að halda að á þá sé hlustað og stöðu þeirra sýndur skilningur. Sauðfjárbændur eru þar engin undantekning og þrátt fyrir að ágætis viðspyrna hafi náðst á undanförnum tveimur árum, með leiðréttingum á afurðaverði, þá er enn of langt í að við getum sest niður og sagt með sanni að afkoma sauðfjárbænda sé viðunandi. 

Tekjugrunnur íslenskra sauðfjárbænda er byggður upp á tveimur lykilstoðum, annarsvegar á stuðningi ríkisins og hinsvegar afurðaverði. Þessar tvær stoðir eiga að skila þeim árangri að neytendur hafi aðgang að lambakjöti á hagstæðu verði, því ríkisstuðningurinn er hugsaður til kjarajöfnunar neytenda og að bændur geti greitt sér mannsæmandi laun. Staðan hefur hins vegar verið sú að sauðfjárbændur hafa rekið sín bú af bestu getu í áraraðir án þess að geta greitt sér viðunandi laun. Í Búvörulögum (4. gr. laga nr. 99/1993) segir skýrt að endurgjald fyrir vinnuframlag skuli vera „til samræmis við kjör þeirra sem vinna sambærileg störf og hafa svipaða menntun, sérhæfni og ábyrgð í starfi á almennum vinnumarkaði“. Einhverra hluta vegna þá virðist sá skilningur ekki vera fyrir hendi að ríkisvaldið þurfi að fara eftir eigin lögum. Það er okkur sauðfjárbændum torskilið hversvegna er.

Fyrir að verða ári síðan þá sendu Bændasamtökin erindi á Verðlagsnefnd búvara þar sem var óskað eftir því að fá reiknaðan verðlagsgrunn fyrir dilkakjöt. Það er skemmst frá því að segja að engin svör hafa komið frá verðlagsnefnd og því ekki hægt að skilja það á neinn annan hátt en þann að ríkið hafi ekki áhuga á að vita framleiðslukostnað á kílói dilkakjöts. Það er afar dapurleg staða að upplifa að ekki sé vilji til að vinna með okkur í að greina og skilja stöðuna, það gæti nefnilega leyst heilmikinn vanda ef að við myndum gera þetta saman. Í Búvörulögum (8. gr. laga nr. 99/1993) segir með skýrum hætti: „Verðlagsnefnd metur framleiðslukostnað sauðfjárafurða fyrir meðalbú“. 

Við horfum oft til annarra ríkja til að bera okkur saman við. Þegar við skoðum hvernig er hugsað um landbúnað í Noregi, og í þessu tilfelli sauðfjárbændur, þá kemur ýmislegt áhugavert í ljós sem að vekur hjá okkur spurningar. Hversvegna er þetta ekki hægt hér?

Samanburður á rekstrargrunni sauðfjárræktar á Íslandi og í Noregi.Aðsend

Búvörusamningar í Noregi eru endurskoðaðir árlega. Við þá endurskoðun er tekið tillit til þróunar á tekjum og kostnaði milli ára og samið um breytingar á fyrirkomulagi stuðningsins. Afkomugreining er framkvæmd af sérstakri hagstofu landbúnaðar og byggja báðir samningsaðilar á þeirra gögnum.

Þannig eru árlega settar fram rekstrarforsendur/verðlagsgrunnur fyrir flestar búgreinar, mismunandi bústærðir og mismunandi staðsetningar, þar sem hluti stuðnings í Noregi er tengdur búsetu. Í samanburðinum hér að ofan er miðað við norskt sauðfjárbú með 288 vetrarfóðraðar ær. Gert er ráð fyrir 1,69 ársverki á því búi. Árið 2023 er áætlað að framleiðslukostnaður sé um 4.516 kr/kg innlagt dilkakjöt, afurðatekjur eru um 1.507 kr/kg, heildar búgreinatekjur um 1.891 kr/kg og ríkisstuðningurinn er um 2.625 kr/kg. Samkvæmt greiningum Bændasamtaka Íslands er áætlað að framleiðslukostnaður á dilkakjöti árið 2023 sé um 2.086 kr/kg, afurðatekjur um 972 kr/kg og opinber stuðningur um 765 kr/kg. Þá vantar um 349 kr/kg til að standa undir áætluðum framleiðslukostnaði. 

Í Noregi er sauðfjárrækt stunduð með sambærilegum hætti og á Íslandi. Því má ætla að þeirra rekstrargrunnur ætti ekki að vera mjög frábrugðinn okkar. Þó hefur verið vitað að vinnuliðurinn í Noregi hefur alltaf verið metinn mjög hár. Sá munur skýrist ekki af kaupmætti launa, þar sem hann er nokkuð svipaður hér á landi og í Noregi. Munurinn á rekstrargrunni sauðfjárbúa á íslandi og Noregi er sláandi og gefur fullt tilefni til þess að skoða betur þær forsendur sem liggja að baki. Nú um nokkuð skeið hafa Bændasamtökin bent á að launagreiðslugeta á sauðfjárbúum sé langt undir þeim viðmiðum sem geta kallast ásættanleg. Afleiðingin er sú að bændur þurfa að gefa eftir sín laun eða einfaldlega sækja sér tekjur utan bús til að greiða niður kostnað við búreksturinn. Þessu þurfum við að breyta.

Höfundur er formaður deildar sauðfjárbænda hjá Bændasamtökum Íslands. 


Football news:

<!DOCTYPE html>
Kane on Tuchel: A wonderful man, full of ideas. Thomas in person says what he thinks
Zarema about Kuziaev's 350,000 euros a year in Le Havre: Translate it into rubles - it's not that little. It is commendable that he left
Aleksandr Mostovoy on Wendel: Two months of walking around in the middle of nowhere and then coming back and dragging the team - that's top level
Sheffield United have bought Euro U21 champion Archer from Aston Villa for £18.5million
Alexander Medvedev on SKA: Without Gazprom, there would be no Zenit titles. There is a winning wave in the city. The next victory in the Gagarin Cup will be in the spring
Smolnikov ended his career at the age of 35. He became the Russian champion three times with Zenit

23:50 Ríkisstjórnarsamstarfið var undir
23:17 Svona komst lögreglan á snoðir um skútuna
23:04 Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Stjarnan 81-87 | Stjörnusigur eftir framlengdan leik í Ljónagryfjunni
23:01 Brighton án Welbeck og March í lengri tíma
23:01 Brighton án Welbeck og Solly March í lengri tíma
22:50 Gátu loksins komið sér saman um þing­for­seta
22:40 Xavi óánægður með ríginn við Real Madrid | Vill sjá vinsemd og virðingu í El Clasico
22:30 Hann var flugumaðurinn í morðingjahópnum
22:28 Vilja varanlega starfsstöð á Nýja-Sjálandi
22:25 Bomba í enskum blöðum í kvöld – United sagt reyna að fá De Gea til að koma aftur
22:25 Líkur á tíðari skjálftahrinum
22:22 Yndislegt að búið sé að opna Þorskafjarðarbrú
22:21 Segir ekkert eld­gos að byrja en hrinan haldi á­fram
22:07 „Enginn á að reikna með auð­veldum leik á móti okkur“
22:00 Leikmenn City fá á baukinn fyrir umdeildan klæðnað í kvöld – „Þetta er hræðilegt“
22:00 Launaþjófnaður afhjúpaður á Suðurlandi eftir hálft ár af stappi – Rótgróinn aðalverktaki spilaði lykilhlutverk
21:57 Aðgerðirnar hafi „óafturkræf áhrif“ á drengina
21:53 Segir Séra Frið­rik hafa leitað á dreng og káfað á honum
21:50 Slysagildra við Álfabakka
21:45 Guðlaugur vill menningarminjar í öndvegi
21:31 Forsetinn og ráðherra mættu í afmæli Reynis Péturs
21:30 Ólga í umræðuhópi í Vesturbæ eftir að umræðu var eytt út – Reyndum fréttamanni blöskrar
21:29 Haukar gengu örugglega frá Eyjakonum
21:00 Verjandinn sem vildi 14 m.kr fyrir 80 daga gekk tómhentur úr Hæstarétti – Sultuslök lögreglan sendi hvorki kröfu né lögmann
21:00 Rampur númer 900 vígður
20:56 Meistaradeildin: Dortmund vann í Newcastle – Haaland opnaði markareikning sinn þetta árið
20:31 Fugla­á­huga­maður sakaður um al­þjóð­legar njósnir og kallaður í skýrslu­töku
20:30 Sjáðu þegar stórstjarnan hrundi af sviðinu í gær – Ætli Shakira sé byrjuð að semja lag?
20:30 Sigurhrina Madgeburg heldur áfram | Sigvaldi hélt sig hægan gegn Aalborg
20:20 Edda handtekin en synirnir neituðu að fara
20:11 Flutningi þriggja ís­lenskra drengja til Noregs frestað
20:05 Nýjar out­let fata­verslanir opna í Holta­görðum
20:00 Heimsmeistarinn handtekinn
20:00 Óttast að Jesus verði lengi frá
19:55 100 manna röð í grenjandi rigningu
19:50 Vilja stöðva alla lundaveiði
19:45 Edda Björk Arnardóttir og maður hennar sögð hafa verið handtekin
19:42 Mun þurfa að svara fyrir öryggisbrestinn
19:31 Menningarminjar að sökkva í sæ
19:30 Nýtt Arons Jó mál í uppsiglingu? – Fyrrum leikmaður FH og Breiðabliks spilaði í Meistaradeildinni í dag en gæti valið Bandaríkin
19:16 Stuðningur við ríkisstjórnina svipaður og við Samfylkingu
19:00 Sjónvarpskonan vinsæla grillaði dónarkarl á samfélagsmiðlum – „Kemur þú með smásjá líka?“
18:52 Að­koma stjórn­valda nauð­syn­leg fyrir gerð lang­tíma­kjara­samninga
18:30 Skaðabótamál eftir örlagaatvik á Nýbýlavegi
18:30 Stóri bróðir sér rauð flögg við sambandið við Taylor Swift
18:30 Haaland verður af 170 milljónum sem margir telja að hann eigi skilið
18:17 Fulltrúadeildin fær loksins nýjan forseta
18:07 Mögu­lega meiri vindur en talið var þegar kastalinn fór á loft
18:06 Þolinmæði á þrotum og fundir skilað litlu sem engu
18:00 Þungur dómur gæti beðið Everton ef félagið verður sakfellt í vikunni
17:53 Vonar að hvatningin nái út fyrir landsteinana
17:52 Þörf á aðkomu stjórnvalda í næstu kjaraviðræðum
17:30 Sjáðu myndina – Braut Onana reglur og hefði átt að endurtaka vítaspyrnuna í gær?
17:30 Leikarinn lendir ítrekað í veseni á flugvöllum vegna nafns síns
17:30 Misþyrmdi þremur mönnum sama daginn
17:30 Segir Haaland að undirbúa sig fyrir það að fá marbletti í kvöld
17:20 Skuggar eftir Sölva Tryggvasonar
17:05 Ísraelar samþykkja að bíða með innrás
17:01 „Þetta var hans ein­læga ósk“
17:01 Hrútarnir spörkuðu sparkaranum eftir slæma helgi
17:00 Klopp færði stuðningsmönnum Liverpool góðar fréttir
16:58 Ný út­lán til fyrir­tækja skreppa saman í fyrsta sinn í nærri tvö ár
16:52 Á annan tug sagt upp hjá Rapyd
16:49 Lokaði erfiðum átján ára hring með heimsókn í Útvarpshúsið
16:49 Vara við mjólk frá Candida Just Milk
16:42 Öryrkjar tapa krónu á móti krónu máli í Hæstarétti
16:36 Settist upp í hjá öku­manni í vímu sem bakkaði á ógnar­hraða
16:30 Auðun lokaði hringnum með heimsókn á RÚV
16:28 Laxveiði 22 % undir meðalveði áranna frá 1974
16:24 Hugsanlega hraðari þróun en áður
16:19 Leiðrétta þarf laun kvennastétta
16:10 Beint: Framúrskarandi fyrirtæki Creditinfo verðlaunuð
16:05 Sandra María í­hugar næstu skref: „Skoða allt sem kemur upp á borðið“
16:00 Fyrrum leikmaður Arsenal að finna sér nýjan vinnuveitanda
16:00 Hafnarfjörður mátti neita að greiða fyrir máltíðir grunnskólabarns
16:00 Skiptar skoðanir um seðlabankarafeyri
15:39 „Ísland á rétt á að veiða þetta“
15:36 Sigríður Hagalín fékk táknræna gjöf frá móður sinni
15:33 Útlitsmeðferðir verði aðeins á færi lækna
15:32 Alvarleg ábending en átti ekki við rök að styðjast
15:31 Schmeichel ærðist af gleði þegar Onana varði vítið gegn FCK
15:31 Ís­lenskir sauð­fjár­bændur launa­lausir – Hvers vegna?
15:30 Klopp hrósar leikmanni sínum í hástert – „Aðlögunarferlinu er löngu lokið“
15:30 Mjaldrasysturnar gætu brátt fengið félagsskap í Vestmannaeyjum
15:29 Útskrifaðist úr háskóla, byrjaði í sínu fyrsta fulla starfi og grætur af vonbrigðum – Hvernig fer fólk að þessu?
15:29 „Í hvaða heimi býrð þú?“
15:23 Neytendastofa slær á putta Arnars – Skilmálar Sante.is ólögmætir
15:18 Kosningar um sameiningu Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar lýkur á laugardag
15:15 Ræddu saman eftir afsögnina
15:10 Björg­vin Ingi og Eva selja hönnunar­para­dís í Akra­hverfinu
15:10 Engar óyggjandi niðurstöður í hoppukastalamáli
15:00 Sjáðu ótrúlegt mark Ronaldo gegn Coutinho og félögum í gær
14:55 Stór­meistarar verði ekki lengur opin­berir starfs­menn
14:53 Afkoma Hafnarfjarðarbæjar betri en var vænst
14:50 Krufningu lokið í Bátavogsmálinu – Segir dauðan smáhund ekki tengjast málinu
14:33 Samþykktu hækkun vaxta í 13%
14:30 Rúnar spurður út í KR: „Ég ætla ekki að svara þessari spurningu… ég hef auðvitað mínar skoðanir“
14:23 Rafvæðing bílaflotans þjóðaröryggismál
14:00 Frestun vandamála fremur en lausn
13:22 Miklar launahækkanir yrðu áhyggjuefni