Lokaði erfiðum átján ára hring með heimsókn í Útvarpshúsið

Hann er þakklátur fyrir boðið og að geta nú lokað málinu sem reyndist honum svo erfitt.

Auðun tjáði sig í fyrsta skipti í átján ár um erfiðleikana sem fylgdu ráðningunni í viðtali við Heimildina á dögunum. Mikill styr var um ráðninguna meðal fréttamanna sem töldu Auðun pólitískt handbendi. Eftir hörð mótmæli fréttamanna hjá RÚV og hótanir hætti hann við að skrifa undir ráðningarsamning.

Auðun lýsti því í viðtalinu við Heimildina að hafa upplifað mikla útskúfun á sínum tíma og glímt við geðræn veikindi. Hann hafi íhugað að valda sér skaða vegna málsins og sætt hótunum þegar hann velti fyrir sér að afþakka boð um starfið.

Uppfyllti hæfniskröfur líkt og aðrir umsækjendur

Tíu sóttu um starfið sem varð laust þegar Kári Jónasson hætti eftir tuttugu ára starf og tók við sem ritstjóri Fréttablaðsins. Auk Auðuns Georgs voru Arnar Páll Hauksson fréttamaður, Óðinn Jónsson fréttamaður, Kristín Þorsteinsdóttir fréttamaður og Pálmi Jónasson fréttamaður á meðal umsækjenda sem voru alls tíu.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í útvarpsráði lögðu til að Auðun Georg yrði ráðinn fréttastjóri. Aðrir fulltrúar í útvarpsráði sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. Félag fréttamanna á RÚV gagnrýndi niðurstöðuna, sendi Markúsi Erni Antonssyni útvarpsstjóra bréf og vísuðu til þess að Bogi Ágústsson, forstöðumaður fréttasviðs, hefði mælt með fimm umsækjendum. Auðunn Georg hefði ekki verið meðal þeirra.

Jóhann Hauksson, dagskrárstjóri Rásar 2 og einn umsækjenda, sagði upp í mótmælaskyni.

Í kjölfarið tilkynnti Markús Örn um ráðningu Auðuns Georgs í yfirlýsingu til fjölmiðla.

Þar kom fram að Auðun líkt og hinir umsækjendurnir hefðu uppfyllt hæfniskröfur. Auðun Georg ætti að baki fjölbreytt nám og byggi yfir starfsreynslu sem myndi nýtast honum vel í starfi.

Þarna var Auðun Georg 34 ára, hafði starfað á fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar samhliða námi í sjö ár og gegnt fréttaritarastörfum í Kaupmannahöfn og Japan. Þá hefði hann sinnt dagskrárgerð hjá Íslenska útvarpsfélaginu. Hans síðasta starf fyrir ráðninguna til RÚV var sem markaðs- og svæðissölustjóri fyrirfyrirtækið í Asíu.

Arnar Páll Hauksson sagði afgreiðslu málsins lítilsvirðingu fyrir fréttastofu RÚV, Óðinn Jónsson sagðist hafa orðið fyrir gríðarlegum vonbrigðum með yfirstjórn og þá stjórnmálamenn sme ráðskast með RÚV og Jóhann Hauksson sagði um skrípaleik að ræða.

Auðun Georg sagðist í viðtali við Fréttablaðið að fólk hefði rétt á sínum tilfinningum. Hann vildi láta verkin tala og sýna sig og sanna. Hann sagðist hlakka til að takast á við verkefnið.

Fullyrt að Auðun Georg væri handbendi stjórnmálaafla

Í hönd fór mikil umræða í samfélaginu um að Auðun Georg hefði verið ráðinn vegna pólitískra tengsla sinna. Fullyrðingar um að hann væri handbendi stjórnmálaafla sem vildu hafa traustan mann í lykilstöðu á fréttastofunni.

Umræða í samfélaginu var gríðarleg og margt ritað sem rætt. Alþjóðasamtök blaðamanna lýstu yfir fullum stuðningi við fréttamenn RÚV og starfsmenn RÚV lýstu yfir vantrausti á Markús Örn útvarpsstjóra.

Broddi Broddason, fréttamaður RÚV, sagði hvorki fréttamenn né aðra starfsmenn RÚV myndu líta á Auðun Georg sem fréttastjóra þó hann kæmi til starfa. Þetta sagði Broddi í lok mars, daginn áður en Auðun Georg mætti sinn fyrsta dag til vinnu.

Svo fór að Auðun Georg hætti við að taka við starfinu á fyrsta degi. Ástæðan var ekki síst umtalað viðtal sem Ingimar Karl Helgason, fréttamaður RÚV, tók við hann á fyrsta degi.

Viðtalið umtalaða sem Ingimark Karl Helgason, fréttamaður útvarps hjá RÚV, tók við Auðun Georg á fyrsta degi.

„Í viðtali sem ég veitti fréttamanni Ríkisútvarpsins í dag í tilefni af því að ég hæfi störf var með lævíslegum hætti reynt að koma mér í vandræði. Það tókst, þar sem ég vildi ekki rjúfa trúnað. En fréttamaðurinn var ekki hlutlaus, hann var málsaðili, og honum tókst ekki að gera greinarmun þar á,“ sagði Auðun Georg í yfirlýsingu sinni.

Markús Örn útvarpsstjóri var hneykslaður á fjölmiðlaumfjöllun um málið.

„Ég segi það sem mína skoðun og hef nú haft orð á því í útvarpinu að það er furðu langt gengið í þessum fréttaflutningi og menn hafa notað sérhvert tækifæri sem þeir hafa. Þeir hafa mjög víðtækt umboð, fréttamenn og dagskrárgerðarmenn Ríkisútvarpsins, til að koma að málflutningi sem er hagstæður þeirra málstað í þessu, inni í fréttum, inni í hinum og þessum dagskrárhornum, bæði í sjónvarpi og útvarpi,“ sagði Markús Örn.

Úr umfjöllun Fréttablaðsins þann 2. apríl. Tímarit.is

Svo fór að Óðinn Jónsson var ráðinn fréttastjóri.

Skildi reiði fréttamanna

Síðan eru liðin heil átján ár. Auðun Georg hefur aldrei tjáð sig um málið í fjölmiðlum fyrr en hann opnaði sig upp á gátt í viðtali við Heimildina. Þar segir hann að vanlíðanin af völdum kvíða og ótta hafi orðið til þess að hann veiktist á geði fyrir 18 árum og að hann hefði í raun þurft að leggjast inn á spítala. Veikindin ágerðust og á gamlárskvöld, um níu mánuðum eftir að hann labbaði út úr Útvarpshúsinu í síðasta sinn, hrundi tilvera Auðuns Georgs.

Gert var grín að uppákomunni í áramótaskaupi Ríkisútvarpsins.

„Flöturinn á gríninu á minn kostnað í skaupinu er mín allra erfiðasta stund þegar sem mest gekk á. Ég hló fyrst þegar atriðið var að byrja og sá sem lék mig var hafður með Framsóknarmerkið í jakkanum. Það var mjög fyndið. En þegar leikarinn fer að gráta þá brast eitthvað innra með mér og gamla skömmin og niðurlægingin blossaði upp.“

Staðreyndin var sú að Auðun Georg hafði aldrei verið flokksbundinn neinum flokki eða tekið þátt í stjórnmálastarfi. Hann segist í viðtali við Heimildina hafa skilið reiðina.

„Einhver náungi úti í bæ sem átti mögulega að vera tengdur Framsóknarflokknum var ráðinn, auðvitað risu þau upp. Ég hefði líka orðið brjálaður hefði ég verið í þeirra sporum. En ég fékk aldrei að tala um það við þau,“ segir Auðun Georg við Heimildina. Hann hafi í langan tíma skammast sín fyrir nafnið sitt eftir að tönnlast hafi verið á því í fjölmiðlum. 

Þá sagðist hann hafa ákveðið fyrir sinn fyrsta dag í starfi að ætla að afþakka starfið. Reiðibylgjan sem skall hafi skapað aðstæður sem hafi verið ómögulegt að stíga inn í. Þá hafi hann fengið skilaboð sem hann túlkaði sem hótun. Of seint væri að bakka út. Það myndi hafa eftirmála fyrir bæði hann og hans nánustu. Þau skilaboð hefðu borist símleiðis, úr heimi stjórnmálanna, en Auðun vildi ekki gefa upp frá hverjum.

Herpingur í maganum

Auðun Georg greinir frá því á Facebook-síðu sinni í dag að hann hafi heimsótt Útvarpshúsið í Efstaleiti í morgun. Stefán Eiríksson útvarpsstjóri hafi boðið honum í heimsókn.

„Frá því í byrjun apríl árið 2005 hefur þetta hús vakið hjá mér óþægilegar tilfinningar,“ segir Auðun Georg.

„Neita því ekki að það var örlítill herpingur í maganum og þurrkur í munni þegar ég gekk þarna upp tröppurnar en Stefán tók vel á móti mér í anddyrinu.“

Þeir hafi rölt um húsið, hitt starfsfólk og Stefán kynnt fyrir honum starfsemina.

„Í leiðinni hitti ég marga gamla vini og kollega úr frétta- og dagskrárgerð sem sýndu mér mikla hlýju. Ég fékk að hitta Heiðar Örn, fréttastjóra, sem ræddi við mig um það sem hann er að fást við á hverjum degi. Heilsaði upp á Boga og það var góð stund sem ég mun varðveita.“

Þá hafi þeir hitti tæknimenn, skoðað stúdíóin, útvarpsmækana og Auðun fengið að nördast í útvarpsleikhúsinu.

„Við Stefán ræddum það sem gerðist áður í þessu húsi og olli miklum sársauka, ekki bara hjá mér. Þótt þetta hafi verið löngu fyrir hans tíð þá sýndi hann mér mikinn velvilja og skilning sem ég er óendanlega þakklátur fyrir. Eftir í mér situr bara kærleikur í garð þessa húss og fólksins sem þar starfar og starfaði áður.“

Auðun Georg starfar í dag sem fréttastjóri á útvarpsstöðinni K100.


Football news:

<!DOCTYPE html>
Kane on Tuchel: A wonderful man, full of ideas. Thomas in person says what he thinks
Zarema about Kuziaev's 350,000 euros a year in Le Havre: Translate it into rubles - it's not that little. It is commendable that he left
Aleksandr Mostovoy on Wendel: Two months of walking around in the middle of nowhere and then coming back and dragging the team - that's top level
Sheffield United have bought Euro U21 champion Archer from Aston Villa for £18.5million
Alexander Medvedev on SKA: Without Gazprom, there would be no Zenit titles. There is a winning wave in the city. The next victory in the Gagarin Cup will be in the spring
Smolnikov ended his career at the age of 35. He became the Russian champion three times with Zenit

23:50 Ríkisstjórnarsamstarfið var undir
23:17 Svona komst lögreglan á snoðir um skútuna
23:04 Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Stjarnan 81-87 | Stjörnusigur eftir framlengdan leik í Ljónagryfjunni
23:01 Brighton án Welbeck og March í lengri tíma
23:01 Brighton án Welbeck og Solly March í lengri tíma
22:50 Gátu loksins komið sér saman um þing­for­seta
22:40 Xavi óánægður með ríginn við Real Madrid | Vill sjá vinsemd og virðingu í El Clasico
22:30 Hann var flugumaðurinn í morðingjahópnum
22:28 Vilja varanlega starfsstöð á Nýja-Sjálandi
22:25 Bomba í enskum blöðum í kvöld – United sagt reyna að fá De Gea til að koma aftur
22:25 Líkur á tíðari skjálftahrinum
22:22 Yndislegt að búið sé að opna Þorskafjarðarbrú
22:21 Segir ekkert eld­gos að byrja en hrinan haldi á­fram
22:07 „Enginn á að reikna með auð­veldum leik á móti okkur“
22:00 Leikmenn City fá á baukinn fyrir umdeildan klæðnað í kvöld – „Þetta er hræðilegt“
22:00 Launaþjófnaður afhjúpaður á Suðurlandi eftir hálft ár af stappi – Rótgróinn aðalverktaki spilaði lykilhlutverk
21:57 Aðgerðirnar hafi „óafturkræf áhrif“ á drengina
21:53 Segir Séra Frið­rik hafa leitað á dreng og káfað á honum
21:50 Slysagildra við Álfabakka
21:45 Guðlaugur vill menningarminjar í öndvegi
21:31 Forsetinn og ráðherra mættu í afmæli Reynis Péturs
21:30 Ólga í umræðuhópi í Vesturbæ eftir að umræðu var eytt út – Reyndum fréttamanni blöskrar
21:29 Haukar gengu örugglega frá Eyjakonum
21:00 Verjandinn sem vildi 14 m.kr fyrir 80 daga gekk tómhentur úr Hæstarétti – Sultuslök lögreglan sendi hvorki kröfu né lögmann
21:00 Rampur númer 900 vígður
20:56 Meistaradeildin: Dortmund vann í Newcastle – Haaland opnaði markareikning sinn þetta árið
20:31 Fugla­á­huga­maður sakaður um al­þjóð­legar njósnir og kallaður í skýrslu­töku
20:30 Sjáðu þegar stórstjarnan hrundi af sviðinu í gær – Ætli Shakira sé byrjuð að semja lag?
20:30 Sigurhrina Madgeburg heldur áfram | Sigvaldi hélt sig hægan gegn Aalborg
20:20 Edda handtekin en synirnir neituðu að fara
20:11 Flutningi þriggja ís­lenskra drengja til Noregs frestað
20:05 Nýjar out­let fata­verslanir opna í Holta­görðum
20:00 Heimsmeistarinn handtekinn
20:00 Óttast að Jesus verði lengi frá
19:55 100 manna röð í grenjandi rigningu
19:50 Vilja stöðva alla lundaveiði
19:45 Edda Björk Arnardóttir og maður hennar sögð hafa verið handtekin
19:42 Mun þurfa að svara fyrir öryggisbrestinn
19:31 Menningarminjar að sökkva í sæ
19:30 Nýtt Arons Jó mál í uppsiglingu? – Fyrrum leikmaður FH og Breiðabliks spilaði í Meistaradeildinni í dag en gæti valið Bandaríkin
19:16 Stuðningur við ríkisstjórnina svipaður og við Samfylkingu
19:00 Sjónvarpskonan vinsæla grillaði dónarkarl á samfélagsmiðlum – „Kemur þú með smásjá líka?“
18:52 Að­koma stjórn­valda nauð­syn­leg fyrir gerð lang­tíma­kjara­samninga
18:30 Skaðabótamál eftir örlagaatvik á Nýbýlavegi
18:30 Stóri bróðir sér rauð flögg við sambandið við Taylor Swift
18:30 Haaland verður af 170 milljónum sem margir telja að hann eigi skilið
18:17 Fulltrúadeildin fær loksins nýjan forseta
18:07 Mögu­lega meiri vindur en talið var þegar kastalinn fór á loft
18:06 Þolinmæði á þrotum og fundir skilað litlu sem engu
18:00 Þungur dómur gæti beðið Everton ef félagið verður sakfellt í vikunni
17:53 Vonar að hvatningin nái út fyrir landsteinana
17:52 Þörf á aðkomu stjórnvalda í næstu kjaraviðræðum
17:30 Sjáðu myndina – Braut Onana reglur og hefði átt að endurtaka vítaspyrnuna í gær?
17:30 Leikarinn lendir ítrekað í veseni á flugvöllum vegna nafns síns
17:30 Misþyrmdi þremur mönnum sama daginn
17:30 Segir Haaland að undirbúa sig fyrir það að fá marbletti í kvöld
17:20 Skuggar eftir Sölva Tryggvasonar
17:05 Ísraelar samþykkja að bíða með innrás
17:01 „Þetta var hans ein­læga ósk“
17:01 Hrútarnir spörkuðu sparkaranum eftir slæma helgi
17:00 Klopp færði stuðningsmönnum Liverpool góðar fréttir
16:58 Ný út­lán til fyrir­tækja skreppa saman í fyrsta sinn í nærri tvö ár
16:52 Á annan tug sagt upp hjá Rapyd
16:49 Lokaði erfiðum átján ára hring með heimsókn í Útvarpshúsið
16:49 Vara við mjólk frá Candida Just Milk
16:42 Öryrkjar tapa krónu á móti krónu máli í Hæstarétti
16:36 Settist upp í hjá öku­manni í vímu sem bakkaði á ógnar­hraða
16:30 Auðun lokaði hringnum með heimsókn á RÚV
16:28 Laxveiði 22 % undir meðalveði áranna frá 1974
16:24 Hugsanlega hraðari þróun en áður
16:19 Leiðrétta þarf laun kvennastétta
16:10 Beint: Framúrskarandi fyrirtæki Creditinfo verðlaunuð
16:05 Sandra María í­hugar næstu skref: „Skoða allt sem kemur upp á borðið“
16:00 Fyrrum leikmaður Arsenal að finna sér nýjan vinnuveitanda
16:00 Hafnarfjörður mátti neita að greiða fyrir máltíðir grunnskólabarns
16:00 Skiptar skoðanir um seðlabankarafeyri
15:39 „Ísland á rétt á að veiða þetta“
15:36 Sigríður Hagalín fékk táknræna gjöf frá móður sinni
15:33 Útlitsmeðferðir verði aðeins á færi lækna
15:32 Alvarleg ábending en átti ekki við rök að styðjast
15:31 Schmeichel ærðist af gleði þegar Onana varði vítið gegn FCK
15:31 Ís­lenskir sauð­fjár­bændur launa­lausir – Hvers vegna?
15:30 Klopp hrósar leikmanni sínum í hástert – „Aðlögunarferlinu er löngu lokið“
15:30 Mjaldrasysturnar gætu brátt fengið félagsskap í Vestmannaeyjum
15:29 Útskrifaðist úr háskóla, byrjaði í sínu fyrsta fulla starfi og grætur af vonbrigðum – Hvernig fer fólk að þessu?
15:29 „Í hvaða heimi býrð þú?“
15:23 Neytendastofa slær á putta Arnars – Skilmálar Sante.is ólögmætir
15:18 Kosningar um sameiningu Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar lýkur á laugardag
15:15 Ræddu saman eftir afsögnina
15:10 Björg­vin Ingi og Eva selja hönnunar­para­dís í Akra­hverfinu
15:10 Engar óyggjandi niðurstöður í hoppukastalamáli
15:00 Sjáðu ótrúlegt mark Ronaldo gegn Coutinho og félögum í gær
14:55 Stór­meistarar verði ekki lengur opin­berir starfs­menn
14:53 Afkoma Hafnarfjarðarbæjar betri en var vænst
14:50 Krufningu lokið í Bátavogsmálinu – Segir dauðan smáhund ekki tengjast málinu
14:33 Samþykktu hækkun vaxta í 13%
14:30 Rúnar spurður út í KR: „Ég ætla ekki að svara þessari spurningu… ég hef auðvitað mínar skoðanir“
14:23 Rafvæðing bílaflotans þjóðaröryggismál
14:00 Frestun vandamála fremur en lausn
13:22 Miklar launahækkanir yrðu áhyggjuefni