Sam­þ­ykkt­­u bráð­a­birð­ga­fjár­l­ög á síð­­ust­­u stund­­u

Kevin McCarthy, umræddur forseti, féll frá öllum kröfum um niðurskurð sem hópur fjar-hægri þingmanna hans hafði krafist og þurfti hann stuðning Demókrata til að koma frumvarpinu í gegnum fulltrúadeildina. Til þess þurfti hann að auka fjárútlát í sjóði til neyðaraðstoðar um sextán milljarða dala.

Frekari aðstoð til Úkraínu vegna innrásar Rússa var einnig tekin út úr frumvarpinu og McCarthy neitaði í nótt að segja hvort hann myndi leggja fram sérstakt frumvarp um þá aðstoð í millitíðinni. Sífellt stækkandi hópur þingmanna Repúblikanaflokksins virðist mótfallinn þessari aðstoð.

Fjárlagafrumvarpið var samþykkt með 335 atkvæðum gegn 91 í fulltrúadeildinni og með 88 atkvæðum gegn níu í öldungadeildinni. Joe Biden, forseti, skrifaði svo undir frumvarpið.

Lokun virtist óhjákvæmileg

Lokun opinberra stofnanna virtist óhjákvæmileg þar til í gærkvöldi, þar sem óreiða hefur ríkt í fulltrúadeildinni. Þá óreiðu má rekja til hóps fjar-hægri þingmanna Repúblikanaflokksins sem hafa krafist þess að fjárlögin innihaldi mikla niðurskurði hjá opinberum stofnunum og aðstoð til Úkraínu verði hætt.

Repúblikanar hafa mjög nauman meirihluta í fulltrúadeildinni og til að tryggja sér embætti þingforseta þurfti McCarthy að láta eftir ýmsum kröfum þessa hóps. Þar á meðal var sú krafa að breyta reglum þingsins svo einungis einn þingmaður geti kallað eftir atkvæðagreiðslu um vantraust á þingforseta.

Þessi hópur hafði eins og áður segir krafist mikils niðurskurðar, sem fer gegn samkomulagi sem McCarthy gerði við Biden fyrr á árinu.

Það samkomulag kom í veg fyrir það að Bandaríkin færu í greiðsluþrot í fyrsta sinn og fól í sér að ríkisútgjöld til stofnanna, annarra en herafla Bandaríkjanna, yrðu ekkert aukin á næsta ári og aðeins aukin um eitt prósent árið 2025.

McCarthy þarf líklega að verjast vantrauststillögu

Uppreisnarmennirnir höfðu gert ljós að ef McCarthy myndi koma fjárlagafrumvarpi gegnum þingið myndu þeir velta honum úr sessi. Fregnir höfðu borist af því á dögunum að uppreisnarmennirnir væru þegar byrjaðir að leita að einhverjum til að taka við af McCarthy og þá einhverjum sem væri líklegri til að hlusta á kröfur þeirra.

McCarthy mun að öllum líkindum standa frammi fyrir atkvæðagreiðslum um vantraust en óljóst er hvort meirihluti sé fyrir því inn þingflokks Repúblikanaflokksins að víkja honum úr embætti.

Níutíu þingmenn flokksins greiddu atkvæði gegn fjárlagafrumvarpinu í nótt en 222 Repúblikanar sitja á þingi, móti 212 Demókrötum.

„Ef einhver vill víkja mér úr embætti fyrir að vera sá fullorðni í herberginu, má hann reyna það,“ sagði McCarthy í nótt og sagðist hann hafa hugsað um Bandaríkin frekar en sæti sitt. Hann hafði einmitt verið gagnrýndur í aðdraganda gærkvöldsins fyrir það að hugsa frekar um embætti sitt en Bandaríkin.

Leiðtogar Repúblikanaflokksins höfðu lýst yfir áhyggjum yfir því að lokun opinberra stofnana myndi koma niður á flokknum í kosningum næsta árs. McCarthy átti fáa aðra kosti en að gera samkomulag við Demókrata eða loka opinberum stofnunum.

Demókratar mótmæltu upprunalega, samkvæmt frétt New York Times, en vildu ekki líta út fyrir að setja aðstoð til Úkraínu ofar lokun opinberra stofnana og þeim tæpu tveimur milljónum starfsmanna herafla bandaríkjanna og tveimur milljónum opinberra starfsmanna sem lokunin hefði haft áhrif á.

„Eru þið að segja mér að þið mynduð loka opinberum stofnunum án aðstoðar til Úkraínu?“ sagði Mike Lawler, þingmaður Repúblikanaflokksins í nótt.

Mitch McConnell, leiðtoi Repúblikana í öldungadeildinni, segir að hann muni berjast fyrir áframhaldandi aðstoð til Úkraínu.AP/Andrew Harnik

Ætla að berast fyrir frekari aðstoð

Þó andstaða við stuðning til Úkraínu hafi aukist meðal Repúblikana í fulltrúadeildinni á það ekki við Repúblikana í öldungadeildinni. Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikanaflokksins þar, segist ætla að berjast fyrir áframhaldandi aðstoð.

Nærri því helmingur þingmanna Repúblikanaflokksins í fulltrúadeildinni greiddi atkvæði með því að fjarlægja ákvæði í fjárlögum um 300 milljóna dala framlag til þjálfunar úkraínskra hermanna og kaupa vopn fyrir þá á dögunum.

Ákvæðið var þó fært í annað frumvarp og samþykkt skömmu síðar, eins og fram kemur í frétt AP fréttaveitunnar.

Bráðabirgðafjárlög McCarthy innihéldu ekki ákvæði úr þverpólitísku fjárlagafrumvarpi öldungadeildarinnar, sem snerist um sex milljarða dala aðstoðarpakka handa Úkraínumönnum.

Vólódómír Selenskí, forseti Úkraínu, ferðaðist nýverið til Bandaríkjanna, þar sem hann ræddi við þingmenn í báðum deildum þingsins. Hann sagði Úkraínumenn geta sigrað Rússa og að þeir væru að sigra, frekari aðstoð væri þó nauðsynleg.

Aðspurður um það hvort hann myndi leggja fram sérstakt frumvarp um aðstoðina á komandi vikum vék McCarthy sér undan því að svara spurningunni.

Eins og Mitch McConnell, sagði Chuck Schumer, forseti öldungadeildarinnar, að Demókratar myndu berjast fyrir áframhaldandi aðstoð til Úkraínu. Meirihluti þingmanna beggja flokka væru hlynntir þeirri aðstoð og að hún væri mikilvæg öryggishagsmunum Bandaríkjanna og lýðræði í heiminum.

Schumer hefur sett frumvarp um áðurnefndan þrjú hundruð milljóna dala aðstoðarpakka á dagskrá öldungadeildarinnar.

Schumer just put the House-passed Ukraine security assistance bill on the Senate s calendar (Rule 14). This is the $300M that was stripped from House s defense spending bill

We reported tonight that this is the possible vehicle for a big Ukraine supphttps://t.co/2ODtK4rWfd

— Andrew Desiderio (@AndrewDesiderio) October 1, 2023

Football news:

<!DOCTYPE html>
Kane on Tuchel: A wonderful man, full of ideas. Thomas in person says what he thinks
Zarema about Kuziaev's 350,000 euros a year in Le Havre: Translate it into rubles - it's not that little. It is commendable that he left
Aleksandr Mostovoy on Wendel: Two months of walking around in the middle of nowhere and then coming back and dragging the team - that's top level
Sheffield United have bought Euro U21 champion Archer from Aston Villa for £18.5million
Alexander Medvedev on SKA: Without Gazprom, there would be no Zenit titles. There is a winning wave in the city. The next victory in the Gagarin Cup will be in the spring
Smolnikov ended his career at the age of 35. He became the Russian champion three times with Zenit

23:50 Ríkisstjórnarsamstarfið var undir
23:17 Svona komst lögreglan á snoðir um skútuna
23:04 Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Stjarnan 81-87 | Stjörnusigur eftir framlengdan leik í Ljónagryfjunni
23:01 Brighton án Welbeck og March í lengri tíma
23:01 Brighton án Welbeck og Solly March í lengri tíma
22:50 Gátu loksins komið sér saman um þing­for­seta
22:40 Xavi óánægður með ríginn við Real Madrid | Vill sjá vinsemd og virðingu í El Clasico
22:30 Hann var flugumaðurinn í morðingjahópnum
22:28 Vilja varanlega starfsstöð á Nýja-Sjálandi
22:25 Bomba í enskum blöðum í kvöld – United sagt reyna að fá De Gea til að koma aftur
22:25 Líkur á tíðari skjálftahrinum
22:22 Yndislegt að búið sé að opna Þorskafjarðarbrú
22:21 Segir ekkert eld­gos að byrja en hrinan haldi á­fram
22:07 „Enginn á að reikna með auð­veldum leik á móti okkur“
22:00 Leikmenn City fá á baukinn fyrir umdeildan klæðnað í kvöld – „Þetta er hræðilegt“
22:00 Launaþjófnaður afhjúpaður á Suðurlandi eftir hálft ár af stappi – Rótgróinn aðalverktaki spilaði lykilhlutverk
21:57 Aðgerðirnar hafi „óafturkræf áhrif“ á drengina
21:53 Segir Séra Frið­rik hafa leitað á dreng og káfað á honum
21:50 Slysagildra við Álfabakka
21:45 Guðlaugur vill menningarminjar í öndvegi
21:31 Forsetinn og ráðherra mættu í afmæli Reynis Péturs
21:30 Ólga í umræðuhópi í Vesturbæ eftir að umræðu var eytt út – Reyndum fréttamanni blöskrar
21:29 Haukar gengu örugglega frá Eyjakonum
21:00 Verjandinn sem vildi 14 m.kr fyrir 80 daga gekk tómhentur úr Hæstarétti – Sultuslök lögreglan sendi hvorki kröfu né lögmann
21:00 Rampur númer 900 vígður
20:56 Meistaradeildin: Dortmund vann í Newcastle – Haaland opnaði markareikning sinn þetta árið
20:31 Fugla­á­huga­maður sakaður um al­þjóð­legar njósnir og kallaður í skýrslu­töku
20:30 Sjáðu þegar stórstjarnan hrundi af sviðinu í gær – Ætli Shakira sé byrjuð að semja lag?
20:30 Sigurhrina Madgeburg heldur áfram | Sigvaldi hélt sig hægan gegn Aalborg
20:20 Edda handtekin en synirnir neituðu að fara
20:11 Flutningi þriggja ís­lenskra drengja til Noregs frestað
20:05 Nýjar out­let fata­verslanir opna í Holta­görðum
20:00 Heimsmeistarinn handtekinn
20:00 Óttast að Jesus verði lengi frá
19:55 100 manna röð í grenjandi rigningu
19:50 Vilja stöðva alla lundaveiði
19:45 Edda Björk Arnardóttir og maður hennar sögð hafa verið handtekin
19:42 Mun þurfa að svara fyrir öryggisbrestinn
19:31 Menningarminjar að sökkva í sæ
19:30 Nýtt Arons Jó mál í uppsiglingu? – Fyrrum leikmaður FH og Breiðabliks spilaði í Meistaradeildinni í dag en gæti valið Bandaríkin
19:16 Stuðningur við ríkisstjórnina svipaður og við Samfylkingu
19:00 Sjónvarpskonan vinsæla grillaði dónarkarl á samfélagsmiðlum – „Kemur þú með smásjá líka?“
18:52 Að­koma stjórn­valda nauð­syn­leg fyrir gerð lang­tíma­kjara­samninga
18:30 Skaðabótamál eftir örlagaatvik á Nýbýlavegi
18:30 Stóri bróðir sér rauð flögg við sambandið við Taylor Swift
18:30 Haaland verður af 170 milljónum sem margir telja að hann eigi skilið
18:17 Fulltrúadeildin fær loksins nýjan forseta
18:07 Mögu­lega meiri vindur en talið var þegar kastalinn fór á loft
18:06 Þolinmæði á þrotum og fundir skilað litlu sem engu
18:00 Þungur dómur gæti beðið Everton ef félagið verður sakfellt í vikunni
17:53 Vonar að hvatningin nái út fyrir landsteinana
17:52 Þörf á aðkomu stjórnvalda í næstu kjaraviðræðum
17:30 Sjáðu myndina – Braut Onana reglur og hefði átt að endurtaka vítaspyrnuna í gær?
17:30 Leikarinn lendir ítrekað í veseni á flugvöllum vegna nafns síns
17:30 Misþyrmdi þremur mönnum sama daginn
17:30 Segir Haaland að undirbúa sig fyrir það að fá marbletti í kvöld
17:20 Skuggar eftir Sölva Tryggvasonar
17:05 Ísraelar samþykkja að bíða með innrás
17:01 „Þetta var hans ein­læga ósk“
17:01 Hrútarnir spörkuðu sparkaranum eftir slæma helgi
17:00 Klopp færði stuðningsmönnum Liverpool góðar fréttir
16:58 Ný út­lán til fyrir­tækja skreppa saman í fyrsta sinn í nærri tvö ár
16:52 Á annan tug sagt upp hjá Rapyd
16:49 Lokaði erfiðum átján ára hring með heimsókn í Útvarpshúsið
16:49 Vara við mjólk frá Candida Just Milk
16:42 Öryrkjar tapa krónu á móti krónu máli í Hæstarétti
16:36 Settist upp í hjá öku­manni í vímu sem bakkaði á ógnar­hraða
16:30 Auðun lokaði hringnum með heimsókn á RÚV
16:28 Laxveiði 22 % undir meðalveði áranna frá 1974
16:24 Hugsanlega hraðari þróun en áður
16:19 Leiðrétta þarf laun kvennastétta
16:10 Beint: Framúrskarandi fyrirtæki Creditinfo verðlaunuð
16:05 Sandra María í­hugar næstu skref: „Skoða allt sem kemur upp á borðið“
16:00 Fyrrum leikmaður Arsenal að finna sér nýjan vinnuveitanda
16:00 Hafnarfjörður mátti neita að greiða fyrir máltíðir grunnskólabarns
16:00 Skiptar skoðanir um seðlabankarafeyri
15:39 „Ísland á rétt á að veiða þetta“
15:36 Sigríður Hagalín fékk táknræna gjöf frá móður sinni
15:33 Útlitsmeðferðir verði aðeins á færi lækna
15:32 Alvarleg ábending en átti ekki við rök að styðjast
15:31 Schmeichel ærðist af gleði þegar Onana varði vítið gegn FCK
15:31 Ís­lenskir sauð­fjár­bændur launa­lausir – Hvers vegna?
15:30 Klopp hrósar leikmanni sínum í hástert – „Aðlögunarferlinu er löngu lokið“
15:30 Mjaldrasysturnar gætu brátt fengið félagsskap í Vestmannaeyjum
15:29 Útskrifaðist úr háskóla, byrjaði í sínu fyrsta fulla starfi og grætur af vonbrigðum – Hvernig fer fólk að þessu?
15:29 „Í hvaða heimi býrð þú?“
15:23 Neytendastofa slær á putta Arnars – Skilmálar Sante.is ólögmætir
15:18 Kosningar um sameiningu Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar lýkur á laugardag
15:15 Ræddu saman eftir afsögnina
15:10 Björg­vin Ingi og Eva selja hönnunar­para­dís í Akra­hverfinu
15:10 Engar óyggjandi niðurstöður í hoppukastalamáli
15:00 Sjáðu ótrúlegt mark Ronaldo gegn Coutinho og félögum í gær
14:55 Stór­meistarar verði ekki lengur opin­berir starfs­menn
14:53 Afkoma Hafnarfjarðarbæjar betri en var vænst
14:50 Krufningu lokið í Bátavogsmálinu – Segir dauðan smáhund ekki tengjast málinu
14:33 Samþykktu hækkun vaxta í 13%
14:30 Rúnar spurður út í KR: „Ég ætla ekki að svara þessari spurningu… ég hef auðvitað mínar skoðanir“
14:23 Rafvæðing bílaflotans þjóðaröryggismál
14:00 Frestun vandamála fremur en lausn
13:22 Miklar launahækkanir yrðu áhyggjuefni