Iceland
This article was added by the user . TheWorldNews is not responsible for the content of the platform.

Edda Björk Arnardóttir og maður hennar sögð hafa verið handtekin

Samkvæmt tilkynningu samtakanna Líf án ofbeldis voru Edda Björk Arnardóttir og maður hennar handtekin fyrr í kvöld og leidd frá heimili sínu í Fannafold í Reykjavík.

Í gang fór að aðfararaðgerð með atbeina lögreglu gegn Eddu en dómstólar hérlendis hafa gert henni skylt að afhenda þrjá syni sína föður þeirra í Noregi, en faðirinn fer með forræði drengjanna.

Edda flaug með börnin hingað til lands í einkaflugvél árið 2022 í óþökk föðurins og norskra yfirvalda.

Samkvæmt heimildarmanni DV var mannsöfnuður fyrir utan heimili Eddu í kvöld henni til stuðnings. Samkvæmt sama heimildarmanni kom Edda heim aftur á áttunda tímanum í kvöld og var aðgerðunum gegn henni frestað.

Í tilkynningu Lífs án ofbeldis segir:

********ATH! HJÁLP!!

Rétt í þessu stendur yfir aðför gegn börnum hennar Eddu Bjarkar.

Við höfum upplýsingar um að Edda og maðurinn hennar, stjúppabbi strákana þrjá, hafa verið fjarlögð í handjárni.

Viljum biðla til allra sem geta mætt á svæðið til að sýna samstöðu að gera það. Einnig má endilega láta fjölmiðla vita.

DV hefur ekki náð sambandi við Eddu þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.