Iceland
This article was added by the user . TheWorldNews is not responsible for the content of the platform.

„Ísland á rétt á að veiða þetta“

Gera má ráð fyrir að íslenskar útgerðir verði fyrir þó nokkrum áhrifum af 20% samdrætti í veiðiheimildum í Barentshafsþorski í samræmi við samninga Norðmanna og Rússa þess efnis.

„Miðað við þennan samdrátt í heimildum er, held ég, ljóst að útgerðir verða að sameina heimildir á þau skip sem fara. Útgerðirnar eru vanar að vinna saman við veiði þessara heimilda, það hefur reyndar oftast miðað að því að ekkert falli niður,“ segir Ólafur Helgi Marteinsson, framkvæmdastjóri útgerðar og aðstoðarforstjóri Ísfélagsins.

Tilkynnt var nýverið að Noregur og Rússland gerðu samkomulag um að ekki verði veitt meira en 453.427 tonn af þorski í Barentshafi árið 2024 í samræmi við ráðgjöf vísindamanna fyrir norðurslóðaþorsk (n. nordøst-arktisk torsk).

Gert er ráð fyrir í Smugusamningunum að ákveðinn hluti af veiðiheimildum Norðmanna og Rússa falli í hlut Íslendinga, en ekki hefur verið hægt að sækja þorsk í rússneska lögsögu í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu.

Á síðasta fiskveiðiári veiddu íslensk skip 4.329 tonn af þorski í norskri lögsögu en svipað magn í rússneskri lögsögu fékkst ekki veitt. Tvö skip lönduðu mestu af þessum afla og landaði Örfirisey RE mestum afla eða 1.666 tonnum. Þá landaði Sólberg ÓF 1.628 tonnum, Björgvin EA 697 tonnum og Harðbakur EA 337 tonnum.

Ólafur Helgi segir að gróflega reiknað, með fyrirvara um breytingar við úthlutun, má ætla að skerðing aflaheimilda í Barentshafi mun þýða að íslenskum skipum verði aðeins heimilt að veiða 3.452 tonn af þorski í norskri lögsögu (slægt).

Sólbergið ÓF öslar sjóinn í Barentshafinu í febrúar 2019.

Sólbergið ÓF öslar sjóinn í Barentshafinu í febrúar 2019. mbl.is/Þorgeir

Vilja veiða í Smugunni

„Síðan eru það heimildirnar í Rússneskri lögsögu, þær falla niður að óbreyttu. Það hefur verið ósk útgerðanna, sem hagsmuna eiga að gæta, að stjórnvöld heimili okkur að veiða þær heimildir í Smugunni eða að stjórnvöld ræði við norðmenn um að við fáum að veiða kvótann í Norskri landhelgi. Þessar heimildir eru partur af Smugusamningnum og Ísland á rétt á að veiða þetta,“ segir Ólafur Helgi.

Hann segir jafn mikið magn í rússneskri lögsögu sem íslensk skip hafa tilkall til og um er að ræða í norskri lögsögu. Tveir þriðjuhlutar aflans er úthlutað á skip en einn þriðji fæst gegn greiðslu. „Það þarf að vera samkomulag um verðið. Samskiptin við Rússa voru erfið frá 2014 og svo engin eftir innrásina í Úkraínu,“ útskýrir Ólafur Helgi.

mbl.is