Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá Reitum, fasteignafélagi. Þar segir að um sé að ræða þrjú stærstu merkjavöru outlet landsins.
Segir ennfremur að í fyrsta sinn á Íslandi geti þau sem vilji vandaðar merkjavörur á lægra verði fundið allt á einum stað, hvort sem leitað sé að skóm, tískuvörum, íþróttafatnaði eða útivistarflíkum.
„Nýju outlet verslanirnar gefa Holtagörðum sérstöðu sem fyrsti outlet áfangastaðurinn á Íslandi. Verslanirnar eru virkilega flottar í sérsniðnu endurnýjuðu húsnæði. Nú geta gestir í Holtagörðum fundið þar föt, skó og íþróttavörur fyrir alla fjölskylduna, allt sem þarf fyrir fallegt heimili og verslað í matinn í leiðinni,“ segir Kristjana Ósk Jónsdóttir, markaðsstjóri Reita.
Fram kemur í tilkynningunni að F&S Outlet muni byggja á grunni Herralagersins, Outlet 10 sé ný verslun frá NTC og að S4S Premium Outlet muni sameina Toppskóinn Outlet og Toppskóinn Markað. Þess er getið að áður hafi ný Bónus verslun opnað í húsnæðinu og að á næstu vikum muni verslunin Partyland opna í verslunarmiðstöðinni.