Iceland
This article was added by the user . TheWorldNews is not responsible for the content of the platform.

Sjáðu myndina – Braut Onana reglur og hefði átt að endurtaka vítaspyrnuna í gær?

Harry Maguire og Andre Onana voru hetjur Manchester United í sigri á FC Kaupmannahöfn í Meistaradeild Evrópu í gær. Fengu þeir skilaboð úr óvæntri átt eftir leik.

Maguire og Onana hafa mátt þola erfiða tíma og gagnrýni undanfarið en þeir stigu heldur betur upp í gær.

Enski miðvörðurinn skoraði sigurmark leiksins fyrir United og Onana varði víti FCK í blálokin sem tryggðu sigurinn.

Nú velta ensk blöð því fyrir sér hvort endurtaka hafi átt vítaspyrnuna í gær, á myndbandi sést Onana fara af línunni áður en spyrnan var tekin.

Forráðamenn FCK hafa bent á þetta en Onana varði spyrnuna.

Enski boltinn á 433 er í boði