Iceland
This article was added by the user . TheWorldNews is not responsible for the content of the platform.

Stuðningur við ríkisstjórnina svipaður og við Samfylkingu

Sjálfstæðisflokkurinn tapar mestu fylgi stjórnarflokkanna milli mánaða samkvæmt nýrri Maskínukönnun sem kom út í dag eða tveimur prósentustigum. Fylgi flokksins hefur sjaldan mælst lægra eða 17,7 prósent. Vinstri græn tapa 0,6 prósentustigum milli kannanna. Ef kosið yrði í dag myndu um 5,9 kjósenda kjósa flokkinn. Framsóknarflokkurinn bætir hins vegar við sig einu prósentustigi og er nú nálægt tíu prósentum.

Samanlagt fylgi stjórnarflokkanna er þó það næst lægsta frá kosningunum 2021 þar sem um þriðjungur kjósenda styður þá eða 33,4 prósent.

Fylgi flokka í október.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins telur ýmsar skýringar á þessu. 

„Þetta er ekki gott. Við myndum að sjálfsögðu vilja vera með meira fylgi í skoðanakönnunum en það er margt sem þarf að leysa og verkefnin eru stór,“ segir hún. 

Aðspurð um hvort hún telji að  stólaskipti milli hennar og Bjarna Benediktssonar eftir að hann sagði af sér sem fjármálaráðherra hafi einhver áhrif á fylgið svara Þórdís:

„Það geta verið margar mismunandi skoðanir sem á endanum sem skýra þessa prósentu. Að sjálfsögðu hafa atburðir undanfarinna daga og vikna eitthvað haft að segja,“ segir hún.

Þurfi að miðla betur sínum málum

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra telur að það þurfi að upplýsa þjóðina betur um verk Vinstri grænna í ríkisstjórn.

„Við liggjum mjög lágt og það ætti að vera áhyggjuefni fyrir okkur í Vinstri grænum. Að einhverju leyti tel ég okkur ekki vera að miðla því nægilega vel því sem við erum að gera því svo sannarlega erum við að vinna að mörgum góðum málum“.

Skýringa sé líka að leita í samstarf stjórnarflokkanna undanfarin misseri.

„Ég held að þessi ágreiningur sem verið hefur milli stjórnarflokkanna sé ekki endilega að falla þjóðinni í geð. Ég held að við munum sjá breytingar á verklagi og vinnubrögðum milli stjórnarflokkanna sem munu skila sér í góðum og jákvæðum árangri,“ segir Katrín

Samfylkingin er sá flokkur sem bætir mest við sig milli kannanna eða rúmlega þremur prósentustigum. Hann mælist nú með tæplega tuttugu og átta prósent fylgi sem er aðeins 5,6 prósent minna fylgi en samanlagt fylgi allra ríkistjórnarflokkanna. Það er minni hreyfing á fylgi annarra stjórnarandstöðuflokka samkvæmt könnun Maskínu.