Iceland
This article was added by the user . TheWorldNews is not responsible for the content of the platform.

Svona komst lögreglan á snoðir um skútuna

Poul Frederik Olsen 54 ára og Henry Fleischer 34 ára sigldu skútunni frá Danmörku á leið sinni til Grænlands. Þeir hafa báðir lýst því að þeir hafi lent í vondu veðri á sjónum og að vélin í skútunni hafi bilað. Þess vegna þurftu þeir að vera við Íslandstrendur.

Þriðji maðurinn og sá yngsti, hinn 21 árs gamli Jonaz Rud Vodder, flaug til Íslands og fékk samkvæmt því sem fram kemur í ákærunni leiðbeiningar um kaup á búnaði og vistum vegna vandræðanna sem mennirnir lentu í úti á sjó.

Það var svo þegar annar skútumannanna kom á gúmmíbát í land til að fá vistir hjá yngsta manninum í fjörunni við Garðskagavita sem lögregla lét til skarar skríða og handtók þá.

Þess má geta að lögreglan hafði gert yfirborðsleit á skútunni, en þá var enginn grunur um að stórfellt fíkniefnasmygl væri að eiga sér stað.

Svo virðist sem Jonaz hafi þótt grunsamlegur þegar hann kom til landsins frá Danmörku. Tollgæslan ræddi við hann og lögreglan í kjölfarið. Hann gaf lögreglu aðgang að síma sínum og þar af leiðandi komst hún yfir samskipti hans, þar sem fram kom að hann ætti að koma vistum í umrædda skútu.

Jonazi var sleppt lausum en var undir smásjá lögreglu. Sími hans var hleraður og náið var fylgst með ferðum bíls hans. Hann gerði það sem lögreglan bjóst við, en það fólst meðal annars í því að kaupa og útbúa vistirnar handa skipverjunum í skútunni. Líkt og áður segir var það þegar annar tvímenninganna fór á gúmmíbát að sækja vistirnar þegar lögregla ákvað að handtaka mennina.

Sérstakur veggur í skútunni

Fleiri lögreglumenn báru vitni í aðalmeðferð málsins á þriðjudag í Héraðsdómi Reykjaness. Þeir lýstu til að mynda aðbúnaði í skútunni og sögðust hafa fundið hassið á bak við vegg, sem virtist nýútbúinn og ekki í takti við aðrar innréttingar skútunnar.

Poul, einn skipverjanna, lýsti því fyrir dómi að í nokkra daga þar sem hann hafði ekki verið í skútunni, þá hafi leynihólf eða box verið útbúið inni í henni.

Í skýrslutöku hjá lögreglu sagðist hann hafa grunað að í leynihólfinu væru fíkniefni. Hann vildi þó ekki ganga svo langt þegar hann bar vitni fyrir dómi, en sagði þó að honum hafi liðið eins og eitthvað illt hafi búið innan í leynihólfinu.