Iceland
This article was added by the user . TheWorldNews is not responsible for the content of the platform.

Forsetinn og ráðherra mættu í afmæli Reynis Péturs

Það voru allir í hátíðaskapi á Sólheimum þegar styttan af Reyni Pétri var afhjúpuð af honum og forseta Íslands við mikinn fögnuð viðstaddra en hún var búin til í tengslum við Íslandsgöngu Reynis Péturs fyrir 38 árum þegar hann gekk hringinn í kringum landið 1985, alls 1.417 kílómetra.

En Reynir Pétur á líka afmæli í dag, er 75 ára og því var fagnað vel, hann fékk meðal annars staf í afmælisgjöf.

Ríkey Ingimundardóttir, listakona, sem gerði styttuna af Reyni Pétri á sínum tíma. Hún er ánægð að styttan sé komin á Sólheima.Magnús Hlynur Hreiðarsson

„Ég fylgdist með honum eins og alþjóð þegar hann gekk hringveginn fyrstur manna. Safnaði fé til að byggja hér íþróttahús en gerðu svo miklu meira en það, vakti um leiða athygli á góðum málstað. Ýtti við samfélaginu og vakti okkur til vitundar um það að í svona öflugu samfélagi eins og við viljum búa í á allt fólk sitt pláss og allir eiga þann rétt að sýna hvað í þeim býr sjálfum sér og öðrum til heilla,” segir Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.

Reynir Pétur og Guðni við styttuna góðu.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Nokkur ávörp voru haldin í tilefni dagsins, meðal annars af dómsmálaráðherra og Ómari Ragnarssyni, sem gerði Íslandsgöngunni góð skil í fréttum á sínum tíma. Þá spilaði Reynir Pétur á munnhörpuna sína fyrir gesti.

„Ég kem hingað að verða fjögurra ára og ég á mörg áhugamál. Það er mjög gott og ég ólst upp hér,” segir Reynir Pétur, afmælisbarn dagsins.

Lionsmenn í klúbbnum Ægi færðu Reyni Pétri blómvönd í tilefni dagsins.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Og Reynir Pétur fékk að sjálfsögðu afmælissöng frá Sólheimakórnum. Eftir dagskrá dagsins var boðið upp á glæsilegt afmæliskaffi í boði Sólheima.

Heimilisfólkið var æst í að fá mynd af sér með forseta Íslands og að sjálfsögðu var það ekkert mál.Magnús Hlynur Hreiðarsson