Arsenal og Brighton mætast í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á Emirates-leikvanginum í London klukkan 14.00. Fylgst er með gangi mála í beinni textalýsingu hér á mbl.is.
Arsenal er í fimmta sæti deildarinnar með 54 stig, jafnmörg og Tottenham sem er í fjórða sætinu. Brighton er í þrettánda sæti með 34 stig.
Leikurinn er einnig sýndur beint á sérvefnum Enski boltinn og útsending þar byrjar kl. 13.30.
Lýsing uppfærist sjálfkrafa
Allar lýsingar í beinni
Aðrir virkir leikir
Leiklýsing
29. mín. Leandro Trossard (Brighton) skorar Frábær afgreiðsla hjá Leonardo Trossard eftir flotta fyrirgjöf Enock Mwepu. 1-0 fyrir Brighton og heimamenn í basli. |