Iceland
This article was added by the user . TheWorldNews is not responsible for the content of the platform.

Fá ekki að dæma fleiri leiki í þessari umferð

Darren England sinnti ekki starfi sínu sem myndbandsdómari þegar mark Luis Diaz var dæmt af í leik gærdagsins. Línuvörður dæmdi rangstöðu, sem VAR dómari hefði hann átt að grípa inn í, leggja línurnar og skoða atvikið betur. En hann misskildi aðstæður, hélt að línuvörður hefði ekki dæmt rangstöðu og skipaði því fyrir að leikur skyldi halda áfram. 

Nú hafa bæði hann og aðstoðarmyndbandsdómarinn, Dan Cook, verið fjarlægðir sem dómarar í leikjum dagsins og morgundagsins í ensku úrvalsdeildinni. Craig Pawson tekur við af England í leik Nottingham og Brentford, Eddie Smart leysir svo Dan Cook af á morgun þegar Fulham mætir Chelsea. 

Howard Webb, formaður dómarasambandsins, hefur haft samband við Liverpool eftir atvikið í leik gærdagsins.