Iceland
This article was added by the user . TheWorldNews is not responsible for the content of the platform.

Fjár­laga­frum­varp sam­þykkt til bráða­birgða

Í gær virtist engin undankomuleið frá því að leggja niður ríkisstofnanir í Bandaríkjunum. Mikil óreiða ríkti á þinginu vegna fámenns hóps úr þingflokki Repúblikanaflokksins sem vildi þvinga Kevin McCarthy, forseta fulltrúadeildarinnar til að skera verulega niður í rekstri ríkisins, þar á meðal stöðva aðstoð til Úkraínu. 

Frumvarpið, sem var samþykkt með 335 atkvæðum gegn 91, felur í sér fjármögnun á opinberum stofnunum til 17. nóvember en í leið stöðvun á aðstoð til Úkraínu. Þó er talið að McCarthy komi til með að leggja fram frumvörp um áframhaldandi stuðning við Úkraínu í framhaldinu. 

Öldungaráð á enn eftir að samþykkja frumvarpið til þess að það verði lögfest en búist er við að það náist. 

Hefðu opinberar stofnanir lokað hefðu tugþúsundir opinberra starfsmanna verið settir í launalaust leyfi frá og með miðnætti.