Iceland
This article was added by the user . TheWorldNews is not responsible for the content of the platform.

Hlýjast á Suðausturlandi í dag

Hægir vindar og víða lítilsháttar væta í dag, en þokuloft við ströndina. Það birtir heldur til á Suðausturlandi upp úr hádegi, en styttir upp í kvöld, að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings.

Hiti 4 til 15 stig, hlýjast á Suðausturlandi í dag, en norðaustan til á morgun.

Allmikil, vaxandi lægð við Nýfundnaland þokast norður á bóginn, en úrkomusvæðið nálgast landið á morgun. Hvessir þá úr suðaustri fer að rigna vestan til um kvöldið.

Úrkomusvæðið þokast áfram til austurs á föstudag og rignir þá víða um land, en helst að mestu þurrt fyrir norðan. 

Veðurvefur mbl.is

mbl.is