Í gær var tilkynnt um innbrot í heimahús í Breiðholti og í geymslur í Hafnarfirði. Málin eru í rannsókn. Tveir ökumenn voru handteknir í gærkvöldi og nótt á höfuðborgarsvæðinu grunaðir um að vera undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna.
Í Miðborginni var tilkynnt um mann í annarlegu ástandi í gærkvöldi. Hann reyndist vera nýbúinn að sprauta sig í æð með fíkniefnum. Hann var fluttur á bráðamóttöku.
Í Kópavogi var ekið á bifreið og stungið af. Tjónvaldurinn fannst skömmu síðar og kom þá í ljós að hann var ekki með ökuréttindi.