Iceland
This article was added by the user . TheWorldNews is not responsible for the content of the platform.

Manstu eftir „fallegustu stúlku veraldar“? – Svona lítur hún út 12 árum seinna

Thylane Lena-Rose Blondeau var aðeins tíu ára gömul þegar hún prýddi síður Vogue og var kölluð „fallegasta stúlka veraldar“.

Thylane er dóttir franska fótboltamannsins Patrick Blondeau og frönsku fjölmiðlakonunnar Veronika Loubry. Thylane byrjaði að sitja fyrir fimm ára gömul og vakti snemma athygli fyrir fegurð sína.

En hún vakti fyrst heimsathygli árið 2011, þegar hún var tíu ára gömul og sat fyrir franska Vogue.

Myndatakan í Vogue vakti heimsathygli.

Thylane var ein af yngstu fyrirsætunum til að prýða síður tískutímaritsins. Mörgum þóttu myndirnar óviðeigandi þar sem Thylane var klædd, förðuð og stillt upp eins og fullorðinni fyrirsætu.

Síðan þá hefur Thylane gengið vel í fyrirsætubransanum. Þegar hún var þrettán ára var hún í fyrsta sinn á forsíðu tímarits.

Í dag er Thylane 22 ár og er hjá umboðsskrifstofunni IMG Models. Hún hefur unnið með L‘Oreal og er einnig vinsæl á samfélagsmiðlum, með yfir 7,2 milljón fylgjendur á Instagram.

Mynd/Instagram @thylaneblondeau

Hún sat á dögunum fyrir skartgripaframleiðandann APM Monaco.

Mynd/Instagram @thylaneblondeau
Mynd/Instagram @thylaneblondeau
Mynd/Instagram @thylaneblondeau

Sjáðu fleiri myndir af henni hér að neðan.

Mynd/Instagram @thylaneblondeau
Mynd/Instagram @thylaneblondeau
Mynd/Instagram @thylaneblondeau
Mynd/Instagram @thylaneblondeau